Brandname

Helga hjartað
Þú getur orðið allt sem þú vilt - en viltu allt sem þú ert? Þetta var spurningin sem ég stóð frammi fyrir eftir að hafa
elt draumana mína - en endað á botninum. Djúpt í hjarta mínu þráði ég frelsi og nánd. Ég hélt að ég gæti öðlast það með því að verða einhver annar - einhver betri.
Í Helga Hjartanu segi ég frá því hvernig draumar mínir rættust. Ekki með því að bæta mig - heldur með því að berskjalda mig. Í bókinni mun lesandinn skilja hvernig skömmin er leiðin að okkar mesta mætti: Samkenndinni.
Samkenndin hefur sýnt mér að einmitt það sem ég hélt að væri að mér - er minn mesti styrkleiki.
Helga Hjartað fjallar um hugrekkið sem ég þurfti til að vera 100% ekta ég. Það er mín ósk að bókin sé innblástur fyrir þig til að vera 100% ekta þú. Einmitt þar getum við hist í frelsinu og SDnándinni sem okkur alltaf dreymdi um.

